Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

Mál nr. 530/2022-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 530/2022

Miðvikudaginn 10. maí 2023

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Unnþór Jónsson lögfræðingur.

Með rafrænni kæru, móttekinni 8. nóvember 2022, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 27. október 2022 um endurreikning og uppgjör tekjutengdra greiðslna ársins 2021.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 27. október 2022, var kæranda tilkynnt um að endurreikningur og uppgjör tekjutengdra greiðslna fyrir árið 2021 hefði leitt í ljós ofgreiðslu bóta að fjárhæð 582.511 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu. Með bréfi, dags. 22. nóvember 2022, tilkynnti Tryggingastofnun kæranda að stofnunin hefði ákveðið að óska eftir frávísun á kæru hans til úrskurðarnefndar velferðarmála og líta á kæruna sem umsókn um niðurfellingu ofgreiðslukröfu. Með bréfi, dags. 14. desember 2022, óskaði Tryggingastofnun eftir frekari gögnum um fjárhagslegar aðstæður kæranda. Beiðnin var ítrekuð með bréfi, dags. 13. janúar 2023. Með bréfi Tryggingastofnunar, dags. 10. mars 2023, var kæranda synjað um niðurfellingu ofgreiðslukröfu.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 8. nóvember 2022. Með bréfi, dags. 9. nóvember 2022, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 22. nóvember 2022, barst beiðni frá Tryggingastofnun ríkisins um frávísun málsins. Úrskurðarnefndin óskaði eftir afstöðu kæranda til þeirrar beiðni með bréfi, dags. 23. nóvember 2022. Bréfið var ítrekað 21. desember 2022 en engin svör bárust frá kæranda. Með bréfi, dags. 8. febrúar 2023, óskaði úrskurðarnefndin eftir efnislegri greinargerð frá Tryggingastofnun. Með bréfi, dags. 24. febrúar 2023, barst greinargerð stofnunarinnar og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 1. mars 2023. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru er greint frá því að Tryggingastofnun ríkisins hafi krafið kæranda um endurgreiðslu ofgreiddra bóta. Kærandi hafi sent inn öll gögn 9. júní 2022. Þann 27. október 2022 hafi kærandi fengið ítrekun og þurft að senda skjölin að nýju. Tryggingastofnun hafi kennt tölvubilun um. Kærandi telji að Tryggingastofnun eigi að taka að taka á sig hluta eða alla sökina. Ef ofgreiðslan sé rétt og hefði uppgötvast í júní hefði kærandi verið kominn langt með að endurgreiða skuldina. Það sé erfitt að byrja að greiða núna vegna þess að hátt verð sé á rafmagni og matvörum.

III.  Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins kemur fram að vísað sé til kæru kæranda, dags. 8. nóvember 2022, til úrskurðarnefndar velferðarmála, sem hafi borist Tryggingastofnun ríkisins með bréfi, dags. 9. nóvember 2022, og varðað niðurstöðu endurreiknings og uppgjörs tekjutengdra greiðslna ársins 2021.

Ágreiningur málsins lúti að því hvort kærandi uppfylli skilyrði 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um niðurfellingu endurkröfu að fullu eða hluta við sérstakar aðstæður.

Í 16. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, sé kveðið á um tilhögun útreiknings tekjutengdra bóta. Í 2. mgr. ákvæðisins sé vísað til laga um tekjuskatt nr. 90/2003 varðandi hvað skuli teljast til tekna. Tryggingastofnun greiði lífeyri á grundvelli áætlunar um tekjur viðkomandi árs, sbr. 5. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar. Bótaþegi beri ábyrgð á því að slík tekjuáætlun endurspegli árstekjur og beri að breyta áætluninni ef svo sé ekki, sbr. 1. mgr. 39. gr. sömu laga og 3. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags, en þar komi fram að bótaþega sé skylt að veita Tryggingastofnun allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og endurskoðun þeirra. Að sama skapi sé bótaþega skylt að tilkynna Tryggingastofnun um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geti haft áhrif á greiðslur. 

Í 7. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar komi fram að þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum, skuli Tryggingastofnun endurreikna bótafjárhæðir á grundvelli tekna. Einnig sé fjallað um endurreikning í reglugerð nr. 598/2009. Tryggingastofnun hafi ekki heimild til að líta fram hjá tekjuupplýsingum sem fram komi í skattframtölum. 

Á skýran hátt sé tekið fram í lögum um almannatryggingar og reglugerð nr. 598/2009 að meginreglan sé að Tryggingastofnun skuli innheimta ofgreiddar bætur, sbr. 55. gr. laga um almannatryggingar, sem sé svohljóðandi: „Hafi Tryggingastofnun ríkisins eða umboð hennar eða eftir atvikum sjúkratryggingastofnunin ofgreitt bótaþega bætur samkvæmt lögum þessum skal stofnunin draga ofgreiddar bætur frá bótum sem bótaþegi síðar kann að öðlast rétt til, sbr. þó 2. mgr. Einnig á Tryggingastofnun eða eftir atvikum sjúkratryggingastofnunin endurkröfurétt á hendur bótaþega eða dánarbúi hans samkvæmt almennum reglum.“ Undantekningu frá þessari meginreglu sé að finna í 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009 varðandi þær kröfur sem myndist við uppgjör tekjutengdra bóta lífeyristrygginga. Þar segi: „Þrátt fyrir að endurreikningur samkvæmt III. kafla leiði í ljós að bætur hafi verið ofgreiddar er heimilt að falla frá endurkröfu að fullu eða að hluta ef alveg sérstakar aðstæður eru fyrir hendi. Skal þá einkum litið til fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna bótaþega og þess hvort hann var í góðri trú um greiðslurétt sinn. Sama gildir um dánarbú eftir því sem við á.”

Krafa sú sem deilt sé um í þessu máli sé tilkomin vegna uppgjörs tekjuársins 2021. Kærandi hafi notið greiðslna ellilífeyris allt árið 2021. 

Með bréfi þann 28. janúar 2021 hafi kæranda verið send tillaga að tekjuáætlun vegna ársins 2021 þar sem gert hafi verið ráð fyrir því að kærandi hefði lífeyrissjóðstekjur að fjárhæð 503.752 kr. og 165.576 NOK, eða samtals 2.984.909 kr. á árinu 2021. Þá hafi einnig verið gert ráð fyrir að kærandi hefði fjármagnstekjur að fjárhæð 96 kr. og 612 NOK, eða samtals 9.267 kr. á árinu 2021. Að lokum hafi verið gert ráð fyrir að kærandi fengi grunnlífeyri að fjárhæð 73.752 NOK, eða 1.105.174 kr. á árinu 2021. Kæranda hafi einnig verið tilkynnt í bréfinu að tekjuáætlunin væri grundvöllur útreiknings á rétti hans til ellilífeyris á árinu 2021 og að það væri á ábyrgð kæranda að upplýsa Tryggingastofnun um breytingar á tekjum innan ársins og tryggja að upplýsingar sem kæmu fram á tekjuáætlun væru réttar. Á grundvelli þessarar tekjuáætlunar hafi kærandi fengið greitt allt árið 2021. 

Með bréfi, dags. 10. apríl 2022, hafi Tryggingastofnun óskað eftir því við kæranda að hann myndi skila afriti af skattframtali sínu fyrir árið 2021 frá búsetulandi sínu, Noregi. Slíkt afrit hafi borist stofnuninni 9. júní 2022.

Við endurreikning og uppgjör tekjutengdra greiðslna ársins 2021 hafi komið í ljós að endanlegar tekjur kæranda á árinu 2021 hafi verið hærri en gert hafi verið ráð fyrir í tekjuáætlun. Á árinu 2021 hafi kærandi samkvæmt skattyfirvöldum haft 4.659.356 kr. í lífeyrissjóðstekjur, 1.935.304 kr. í formi erlends grunnlífeyris og 521 kr. í fjármagnstekjur. 

Niðurstaða endurreiknings og uppgjörs tekjutengdra greiðslna ársins 2021 hafi verið birt kæranda með bréfi, dags. 27. október 2021. Þar komi fram að heildargreiðslur kæranda á árinu 2021 hefðu verið hærri en réttindi hans samkvæmt skattframtali 2022. Kærandi hafi þannig fengið 1.552.492 kr. greiddar á árinu en hefði með réttu átt að fá 952.720 kr. Mismunurinn hafi því verið reiknaður 599.772 kr. Þessi mismunur hafi leitt til ofgreiðslu að fjárhæð 582.511 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu.

Niðurstaða endurreiknings og uppgjörs tekjutengdra greiðslna kæranda á árinu 2021 hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála 8. nóvember 2022. Í kæru sinni krefjist kærandi þess að Tryggingastofnun felli niður ofgreiðslukröfuna að hluta eða í heild vegna þess að stofnunin eigi sök á því hversu seint niðurstaða endurreikningsins hafi legið fyrir vegna ítrekunar á beiðni um gögn sem send hafi verið kæranda, þrátt fyrir að gögnin hefðu borist og vegna erfiðra fjárhagslegra aðstæðna hans.

Með beiðni, dags. 22. nóvember 2022, til úrskurðarnefndar velferðarmála hafi Tryggingastofnun óskað eftir því að máli kæranda yrði vísað frá á þeim grundvelli að stofnunin hefði ekki tekið afstöðu til þess hvort kærandi hafi uppfyllt skilyrði áðurnefndrar undanþáguheimildar 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009 þar sem kærandi hefði ekki formlega sótt um niðurfellingu ofgreiðslukröfu.

Í kjölfar kærunnar og athugasemda kæranda við hana hafi verið ákveðið að taka mál kæranda til skoðunar eins og umsókn um niðurfellingu ofgreiðslukröfu hefði borist. Bréf þess efnis hafi verið sent kæranda 22. nóvember 2022. Með bréfi, dags. 14. desember 2022, hafi samráðsnefnd óskað eftir frekari gögnum frá kæranda um fjárhagslegar aðstæður hans. Sú beiðni hafi verið ítrekuð með bréfi, dags. 13. janúar 2023, þar sem engin slík gögn hefðu borist frá kæranda. Enn hafi engin slík gögn borist frá kæranda.

Með bréfi, dags. 8. febrúar 2023, hafi Tryggingastofnun verið tilkynnt að úrskurðarnefnd velferðarmála hefði ákveðið að taka kæruna til efnislegrar úrlausnar og að óskað væri þess vegna eftir greinargerð stofnunarinnar.

Með bréfi, dags. 10. apríl 2022, hafi verið óskað eftir upplýsingum um erlendar tekjur kæranda á árinu 2021 í formi afrits af skattframtali kæranda frá búsetulandi hans. Kærandi hafi skilað slíku afriti 9. júní 2022. Þann 31. ágúst 2022 hafi fyrir mistök verið send ítrekun á beiðni um upplýsingar um erlendar tekjur kæranda á árinu 2021, þrátt fyrir að kærandi hefði nú þegar skilað þeim gögnum. Þann 3. október 2022 hafi móttaka gagnanna verið staðfest í kjölfar fyrirspurnar kæranda og honum gerð grein fyrir því að áðurnefnd ítrekun hefði fyrir mistök verið send vegna villu í tölvukerfi stofnunarinnar og beðist velvirðingar á því. 

Kærandi sé ósáttur við að niðurstaða endurreiknings og uppgjörs tekjutengdra greiðslna ársins 2021 hafi ekki legið fyrir fyrr þar sem hann hefði þannig getað hafið endurgreiðslu fyrr. Þessa töf á birtingu niðurstöðu telji kærandi að rekja megi til þess að Tryggingastofnun hafi talið allar nauðsynlegar upplýsingar um tekjur kæranda erlendis hafa legið fyrir seinna en raunin hafi verið. Þetta telji kærandi að megi leiða af því að ítrekuð beiðni um upplýsingar um tekjur kæranda erlendis hafi verið send honum 31. ágúst 2022, þrátt fyrir að umbeðin gögn hafi legið fyrir á þeim tímapunkti. Tryggingastofnun biðjist velvirðingar á því að hafa sent út ítrekunarbréf þann 31. ágúst 2022 að óþörfu en árétti að það hafi ekki orðið þess valdur að birting niðurstöðu endurreiknings og uppgjörs tekjutengda greiðslna ársins 2021 hafi dregist.

Í kjölfar þess að öll nauðsynleg gögn hafi legið fyrir þann 9. júní 2022 hafi endurreikningur tekjutengdra greiðslna kæranda á árinu 2021 verið unninn eins hratt og mögulegt hafi verið. Þann 27. október 2022 hafi niðurstaða endurreiknings og uppgjörs tekjutengdra greiðslna ársins 2021 verið birt kæranda með bréfi.

Í kjölfar kæru þessarar hafi meðal annars verið skoðuð ástæða ofgreiðslunnar, upplýsingar frá skattyfirvöldum um tekjur og eignir, að viðbættum þeim upplýsingum sem aflað hafi verið úr tölvukerfi stofnunarinnar um fjárhag og félagslega stöðu kæranda. 

Ákvæði 55. gr. laga um almannatryggingar fjalli um innheimtu ofgreiddra bóta. Ákvæðið sé ekki heimildarákvæði um innheimtu heldur sé lögð sú skylda á Tryggingastofnun að innheimta ofgreiddar bætur. Tryggingastofnun sé ekki heimilt að horfa fram hjá tekjum sem birtist á framtali bótaþega, eins og ítrekað hafi verið staðfest af úrskurðarnefnd og hafi einnig verið staðfest fyrir dómstólum. Ákvæði 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009 sé undanþáguheimild og sem slíkt skuli skýra það þröngt. Í þessu ákvæði felist að við ákvörðun um hvort fella eigi niður kröfu eigi að fara fram mat, annars vegar á fjárhagslegum og félagslegum aðstæðum umsækjanda, með tilliti til getu hans til að endurgreiða skuldina, og hins vegar á því hvort hann hafi verið í góðri trú um greiðslurétt sinn þegar hann hafi tekið við hinum ofgreiddu bótum. Aðstæður þurfi að vera sérstakar svo að undanþáguheimild 11. gr. reglugerðarinnar eigi við. 

Umræddar kröfur hafi orðið til við endurreikninga tekjuársins 2021. Ekki sé deilt um að krafan sé réttmæt. Tryggingastofnun greiði lífeyri á grundvelli áætlunar um tekjur viðkomandi árs. Eins og meðfylgjandi gögn beri með sér sé ljóst að ástæða ofgreiðslunnar hafi verið röng tekjuáætlun. Í þessu tilfelli hafi verið um að ræða vanáætlun á lífeyrissjóðstekjum og erlendum lífeyri. Lífeyrisþegi beri ábyrgð á því að slík tekjuáætlun endurspegli árstekjur og beri að breyta áætluninni ef svo sé ekki, sbr. 1. mgr. 39. gr. laganna. Engar breytingar hafi verið gerðar á upprunalegri tekjuáætlun frá 28. janúar 2021 af kæranda. Vegna þessa telji Tryggingastofnun kæranda ekki hafa verið í góðri trú í skilningi 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009.

Þar sem kærandi hafi hvorki sótt formlega um niðurfellingu ofgreiðslukröfunnar né svarað ósk stofnunarinnar um frekari gögn um fjárhagslegar aðstæður sínar skorti slíkar upplýsingar við gerð þessarar greinargerðar. Verður kærandi að bera hallann af þeim upplýsingaskorti. Hvað varðar fjárhagslegar aðstæður hafi meðaltekjur kæranda árið 2021 samkvæmt gögnum frá skattyfirvöldum verið 549.598 kr. á mánuði og árið 2020 hafi meðaltekjurnar verið 255.358 kr. á mánuði. Þá verði ráðið af gögnum málsins að eignastaða kæranda hafi verið umfram skuldir á árinu 2021. Samkvæmt þessum upplýsingum hafi Tryggingastofnun talið að fjárhagslegar aðstæður kæranda væru ekki slíkar að geta kæranda til endurgreiðslu væri ekki til staðar. Einnig hafi verið horft til þess hvernig krafan sé tilkomin eins og áður greinir. 

Með hliðsjón af ofangreindu telji Tryggingastofnun að geta kæranda til endurgreiðslu eftirstöðva krafna sé fyrir hendi.

Tryggingastofnun hafi skoðað gögn málsins á ný en telji ekki ástæðu til þess að breyta fyrri ákvörðun sinni um afgreiðslu á niðurfellingarbeiðni kæranda.

IV.  Niðurstaða

Upphafleg kæra í málinu varðar ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 27. október 2022 um endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum kæranda vegna ársins 2021. Undir rekstri málsins synjaði Tryggingastofnun jafnframt kæranda um niðurfellingu endurgreiðslukröfu með bréfi, dags. 10. mars 2023. Kærumál þetta lýtur að þessum tveimur ákvörðunum.

A. Endurreikningur og uppgjör

Kærandi fékk greiddan ellilífeyri frá Tryggingastofnun á árinu 2021. Samkvæmt þágildandi 39. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, er umsækjanda eða greiðsluþega skylt að veita stofnuninni allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og annarra greiðslna samkvæmt lögunum og endurskoðun þeirra. Enn fremur er skylt að tilkynna stofnuninni um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geta haft áhrif á bætur eða greiðslur. Af framangreindu verður ráðið að sú skylda hvíli á greiðsluþegum að upplýsa Tryggingastofnun um tekjur á bótagreiðsluári sem kunna að hafa áhrif á bótarétt.

Í þágildandi 16. gr. laga um almannatryggingar er kveðið á um tekjutengingu lífeyristrygginga og hvernig Tryggingastofnun ríkisins skuli standa að útreikningi bóta. Í 2. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar segir að til tekna samkvæmt III. kafla skuli telja tekjur samkvæmt II. kafla laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, með tilteknum undantekningum. Á grundvelli 7. mgr. 16. gr. þeirra laga ber Tryggingastofnun að endurreikna bótafjárhæðir eftir að endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluárs liggja fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. Leiði endurreikningur í ljós að bætur hafi verið ofgreiddar ber Tryggingastofnun að innheimta þær samkvæmt þágildandi 55. gr. laga um almannatryggingar. Sú meginregla er ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags.

Við úrlausn þessa máls hefur úrskurðarnefnd velferðarmála hliðsjón af þeim lagaákvæðum sem tilgreind hafa verið hér að framan.

Samkvæmt gögnum málsins sendi Tryggingastofnun kæranda tillögu að tekjuáætlun vegna ársins 2020 þann 28. janúar 2021 þar sem gert var ráð fyrir lífeyrissjóðstekjum að fjárhæð 503.752 kr. og 165.576 NOK, fjármagnstekjum að fjárhæð 96 kr. og 612 NOK og grunnlífeyri að fjárhæð 73.752 NOK. Kærandi gerði ekki athugasemdir við þá áætlun og voru bótaréttindi því reiknuð og bætur greiddar í samræmi við þær tekjuforsendur allt árið.

Samkvæmt upplýsingum skattyfirvalda á Íslandi og í Noregi vegna tekjuársins 2021 reyndist kærandi hafa fengið 4.659.354 kr. í lífeyrissjóðstekjur, 1.935.304 kr. í erlendan grunnlífeyri og 521 kr. í fjármagnstekjur á árinu. Endurreikningur Tryggingastofnunar á tekjutengdum bótagreiðslum vegna ársins 2020 leiddi í ljós að myndast hefði ofgreiðsla að fjárhæð 582.511 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu.

Ástæða þess að endurkrafa myndaðist á hendur kæranda er sú að tekjur ársins 2021 voru hærri en gert hafði verið ráð fyrir í tekjuáætlun. Um var að ræða lífeyrissjóðstekjur. Lífeyrissjóðstekjur eru tekjustofn sem hafa áhrif við útreikning Tryggingastofnunar á bótafjárhæð, sbr. 2. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar og 1. tölul. A-liðar 7. gr. laga um tekjuskatt.

Tryggingastofnun greiðir tekjutengdar bætur á grundvelli upplýsinga úr tekjuáætlun viðkomandi greiðsluþega. Þá ber stofnuninni lögum samkvæmt að endurreikna bætur með hliðsjón af upplýsingum skattyfirvalda og innheimta ofgreiddar bætur.

Kærandi er ósáttur við að niðurstaða endurreiknings og uppgjörs tekjutengdra greiðslna ársins 2021 hafi ekki legið fyrir fyrr þar sem hann hefði þannig getað hafið endurgreiðslu fyrr. Samkvæmt gögnum málsins skilaði kærandi inn norsku skattframtali 9. júní 2022 og endurreikningurinn fór fram 27. október 2022. Þrátt fyrir að fallast megi á að nokkuð langur tími hafi liðið frá því að gögn bárust Tryggingastofnun þar til hin kærða ákvörðun var tekin, sbr. málshraðareglu 9. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, telur úrskurðarnefndin ekki koma til álita að fella hana úr gildi einungis á þeim grundvelli.

 

Að framangreindu virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta ákvörðun um endurreikning og uppgjör Tryggingastofnunar ríkisins á tekjutengdum bótum ársins 2021.

B. Krafa um niðurfellingu ofgreiddra bóta

Eins og áður hefur komið fram ber Tryggingastofnun lögum samkvæmt að endurreikna bótafjárhæðir bótagreiðsluárs eftir að álagning skattyfirvalda á opinberum gjöldum hefur farið fram, sbr. fyrrgreinda 7. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar. Þá er meginreglan sú að stofnuninni ber að innheimta ofgreiddar bætur, sbr. 55. gr. laganna. Í 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags er hins vegar að finna heimild til undanþágu frá endurgreiðslukröfu vegna ofgreiddra bóta. Ákvæðið hljóðar svo:

„Þrátt fyrir að endurreikningur samkvæmt III. kafla leiði í ljós að bætur hafi verið ofgreiddar er heimilt að falla frá endurkröfu að fullu eða að hluta ef alveg sérstakar aðstæður eru fyrir hendi. Skal þá einkum litið til fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna bótaþega og þess hvort hann var í góðri trú um greiðslurétt sinn. Sama gildir um dánarbú eftir því sem við á.“

Framangreind 11. gr. reglugerðarinnar heimilar undanþágu frá endurgreiðslukröfu, að uppfylltum tilteknum skilyrðum. Aðstæður verða að vera sérstakar. Við mat á því hvort aðstæður séu sérstakar skal einkum litið til fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna bótaþega og þess hvort bótaþegi hafi verið í góðri trú þegar hann tók við hinum ofgreiddu bótum. Tryggingastofnun ríkisins hefur hafnað því að heimild tilvitnaðs reglugerðarákvæðis eigi við í tilviki kæranda.

Í máli þessu synjaði Tryggingastofnun að fella niður endurgreiðslukröfu sem hafði myndast vegna ársins 2021. Kærandi óskaði ekki formlega eftir niðurfellingu kröfunnar en stofnunin taldi að ráða mætti af kæru að hann hefði óskað eftir niðurfellingu. Tryggingastofnun óskaði eftir frekari gögnum um fjárhagslegar aðstæður kæranda með bréfum, dags. 14. desember 2022 og 13. janúar 2023, en engin gögn bárust.

Úrskurðarnefnd velferðarmála lítur til þess við úrlausn þessa máls að greiðslur ellilífeyris frá Tryggingastofnun ríkisins sæta tekjuskerðingu og eru bótaþegar upplýstir um tekjutenginguna við upphaf lífeyristöku. Þá er bótaþegum gert að upplýsa um tekjur sínar á bótagreiðsluári í tekjuáætlun hvers árs. Eins og áður greinir gerir 39. gr. laga um almannatryggingar ráð fyrir að það komi í hlut þess aðila, sem bætur þiggur frá Tryggingastofnun, að upplýsa réttilega um tekjur sem kunna að falla til á bótagreiðsluári. Þannig hvílir sú ábyrgð á bótaþega að tekjuáætlun sé rétt. Samkvæmt gögnum málsins hefur kærandi verið upplýstur um þessa skyldu sína. Því er ekki fallist á að kærandi hafi verið í góðri trú í skilningi 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009.

Kemur þá til skoðunar hvort fjárhagslegar og félagslegar aðstæður kæranda gefi tilefni til niðurfellingar en takmarkaðar upplýsingar liggja fyrir þar sem kærandi svaraði ekki bréfum Tryggingastofnunar. Meðaltekjur kæranda á árinu 2021 voru 549.598 kr. á mánuði samkvæmt gögnum frá skattyfirvöldum, að undanskildum tekjum frá Tryggingastofnun ríkisins. Þá verður ráðið af gögnum málsins að eignastaða kæranda hafi verið umfram skuldir á árinu 2021. Úrskurðarnefndin lítur til þess að Tryggingastofnun hefur dreift eftirstöðvum kröfunnar á 60 mánuði í stað þess að kærandi þurfi að endurgreiða ofgreiðslukröfuna á 12 mánuðum eins og meginreglan er samkvæmt 3. mgr. 55. gr. laga um almannatryggingar. Mánaðarleg greiðslubyrði af kröfunni nemur því 8.103 kr. Með hliðsjón af þessu telur úrskurðarnefndin að geta til endurgreiðslu sé fyrir hendi. Þá er ekkert í gögnum málsins sem bendir til erfiðra félagslegra aðstæðna. Einnig lítur nefndin til þess að samkvæmt meginreglu 55. gr. laga um almannatryggingar skal Tryggingastofnun innheimta ofgreiddar bætur og ber að túlka undantekningu frá þeirri meginreglu þröngt samkvæmt almennum lögskýringarsjónarmiðum. Að framangreindu virtu er það mat úrskurðarnefndar velferðarmála að ekki sé tilefni til niðurfellingar endurgreiðslukröfunnar á grundvelli 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009.

Með hliðsjón af framangreindu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta ákvörðun Tryggingastofnunar um að synja  kæranda um niðurfellingu ofgreiddra bóta.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvarðanir Tryggingastofnunar ríkisins um endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum A, vegna ársins 2021 og synjun umsóknar um niðurfellingu ofgreiddra bóta, eru staðfestar.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum